0:00:00.000,0:00:02.000 Síðasta eitt og hálfa árið, 0:00:02.000,0:00:04.000 hefur lið mitt við Push Pop Press 0:00:04.000,0:00:06.000 og Charlie Melcher ásamt Melcher Media 0:00:06.000,0:00:08.000 verið að vinna að því að búa til 0:00:08.000,0:00:10.000 fyrstu gagnvirku bókina í fullri lengd. 0:00:10.000,0:00:12.000 Hún heitir „Okkar val“ e. „Our Choice“ 0:00:12.000,0:00:14.000 og höfundurinn er Al Gore. 0:00:14.000,0:00:16.000 Hún er framhald af „Óþægilegur sannleikur“ e. „An Inconvenient Truth“ 0:00:16.000,0:00:18.000 og hún fer í allar þær lausnir 0:00:18.000,0:00:20.000 sem geta leyst vandamálið við hlýnun jarðar. 0:00:20.000,0:00:23.000 Bókin hefst svona. Þetta er forsíðan. 0:00:24.000,0:00:26.000 Meðan hnötturinn snýst, 0:00:26.000,0:00:28.000 getum við séð hvar við erum staðsett. 0:00:28.000,0:00:31.000 Svo getum við opnað bókina 0:00:31.000,0:00:33.000 og rennt í gegnum kaflana 0:00:33.000,0:00:35.000 til að skoða bókina. 0:00:36.000,0:00:39.000 Eða við getum rennt í gegnum blaðsíðurnar hér neðst. 0:00:40.000,0:00:42.000 Og ef við viljum þysja inn að síðu, 0:00:42.000,0:00:44.000 getum við bara opnað hana. 0:00:44.000,0:00:46.000 Og allt það sem þið sjáið í bókinni, 0:00:46.000,0:00:48.000 er hægt að taka upp með tveimur fingrum 0:00:48.000,0:00:50.000 og lyfta af síðunni 0:00:50.000,0:00:52.000 og opna. 0:00:52.000,0:00:54.000 Og ef þið viljið fara til baka 0:00:54.000,0:00:56.000 og lesa bókina aftur, 0:00:56.000,0:00:59.000 brjótið þið það bara saman og setjið aftur á síðuna. 0:01:00.000,0:01:03.000 Og þetta virkar eins, þið takið það upp og flettið úr því. 0:01:03.000,0:01:05.000 (Upptaka) Al Gore: Ég lít á sjálfan mig 0:01:05.000,0:01:07.000 sem hluta af þeim meirihluta 0:01:07.000,0:01:09.000 sem lítur á vindmillur og finnst 0:01:09.000,0:01:11.000 þær vera falleg viðbót við landslagið. 0:01:11.000,0:01:13.000 Mike Matas: Og í gegnum alla bókina, 0:01:13.000,0:01:16.000 mun Al Gore útskýra fyrir ykkur efnið og myndirnar. 0:01:16.000,0:01:19.000 Þessa mynd getið þið jafnvel séð á gagnvirku korti. 0:01:20.000,0:01:23.000 Þysjað að henni og séð hvar hún var tekin. 0:01:25.000,0:01:27.000 Og í gegnum bókina, 0:01:27.000,0:01:29.000 er meira en klukkustund af heimildarmynda efni 0:01:29.000,0:01:31.000 og gagnvirkum hreyfimyndum. 0:01:31.000,0:01:34.000 Svo þið getið opnað þessa. 0:01:34.000,0:01:37.000 (Upptaka) AG: Flestar nútíma vindmillur eru settar saman af stórum ... 0:01:37.000,0:01:39.000 MM: Og það spilast strax . 0:01:39.000,0:01:42.000 Og á meðan það spilar, getum við kíkt aftur á síðuna, 0:01:42.000,0:01:44.000 og myndbandið heldur áfram að spilast. 0:01:44.000,0:01:47.000 Við getum farið aftur á efnisyfirlit, 0:01:47.000,0:01:50.000 og myndbandið heldur áfram að spilast. 0:01:52.000,0:01:54.000 En eitt af því svalasta í þessari bók 0:01:54.000,0:01:56.000 eru gagnvirku upplýsinga teikningarnar. 0:01:56.000,0:01:58.000 Þessi sýnir vindmöguleika 0:01:58.000,0:02:00.000 um öll Bandaríkin. 0:02:00.000,0:02:03.000 En í stað þess að sýna einungis upplýsingar, 0:02:03.000,0:02:06.000 getum við notað fingurinn og skoðað, 0:02:06.000,0:02:08.000 og séð, fylki fyrir fylki, 0:02:08.000,0:02:10.000 hversu miklir vindmöguleikarnir eru. 0:02:10.000,0:02:13.000 Við getum gert það sama með jarðorku 0:02:15.000,0:02:17.000 og sólarorku. 0:02:23.000,0:02:25.000 Og þetta er eitt af mínum uppáhalds. 0:02:25.000,0:02:28.000 Þetta sýnir sem sagt ... 0:02:30.000,0:02:34.000 (Hlátur) 0:02:34.000,0:02:36.000 (Lófatak) 0:02:36.000,0:02:38.000 Þegar vindurinn blæs, 0:02:38.000,0:02:41.000 er öll auka orka sem kemur frá vindmillunni 0:02:41.000,0:02:43.000 send í rafhlöðu. 0:02:43.000,0:02:45.000 Og eftir því sem vindinn lægir, 0:02:45.000,0:02:47.000 er öll auka orkan send aftur inn í húsið -- 0:02:47.000,0:02:50.000 ljósin slokkna aldrei. 0:02:53.000,0:02:56.000 Og alla þessa bók, hana er ekki einungis hægt að nota á iPad. 0:02:56.000,0:02:59.000 Hún virkar líka á iPhone. 0:02:59.000,0:03:01.000 Svo þið getið byrjað að lesa hana á iPad-inum ykkar heima í stofu 0:03:01.000,0:03:03.000 og síðan haldið áfram þaðan sem frá var horfið á iPhone. 0:03:03.000,0:03:05.000 Og það virkar á nákvæmlega sama hátt. 0:03:05.000,0:03:07.000 Þú getur klipið í hvaða síðu sem er. 0:03:07.000,0:03:09.000 Opnað hana. 0:03:23.000,0:03:25.000 Svo þetta er fyrsta bók Push Pop Press, 0:03:25.000,0:03:27.000 „Okkar val“ eftir Al Gore. 0:03:27.000,0:03:29.000 Þakka ykkur fyrir. 0:03:29.000,0:03:37.000 (Lófatak) 0:03:37.000,0:03:40.000 Chris Anderson: Þetta er glæsilegt. 0:03:40.000,0:03:42.000 Langar þig til að verða útgefandi, 0:03:42.000,0:03:44.000 selja hugbúnaðarleyfi? 0:03:44.000,0:03:46.000 Hver er viðskiptahugmyndin? 0:03:46.000,0:03:48.000 Er þetta eitthvað sem aðrir geta gert? 0:03:48.000,0:03:50.000 MM: Já, við erum að búa til tól 0:03:50.000,0:03:53.000 sem leyfir útgefendum að búa auðveldlega til svona efni. 0:03:53.000,0:03:55.000 Þannig að lið Melcher Media, sem er á austurströndinni -- 0:03:55.000,0:03:58.000 og við erum á vesturströndinni, að búa til hugbúnaðinn -- 0:03:58.000,0:04:00.000 tekur tólið okkar 0:04:00.000,0:04:03.000 og dregur, á hverjum degi, inn myndir og texta. 0:04:03.000,0:04:06.000 CA: Svo þú vilt selja útgefendum hugbúnaðarleyfi 0:04:06.000,0:04:08.000 til að gera svona fallegar bækur? (MM: Já.) 0:04:08.000,0:04:10.000 Allt í lagi. Mike, þakka þér kærlega fyrir. 0:04:10.000,0:04:12.000 MM: Þakka þér. (CA: Gangi þér vel.) 0:04:12.000,0:04:14.000 (Lófatak)