"Maríó!" "Ó! Hjálp!" Velkomin í þáttaröðina okkar þar sem við skoðum hlutverk og birtingarmyndir kvenna í tölvuleikjum Í þáttunum könnum við þær klisjur, frásagnartækni og munstur sem oftast tengjast konum í tölvuleikjum á kerfisbundinn hátt með heildarmyndina í huga. Í þáttaröðinni verða margir vinsælir leikir og ástsælar sögupersónur rýndar á gagnrýninn hátt. en munið, að það er bæði mögulegt, og jafnvel nauðsynlegt, að hafa ánægju af listformi, en vera um leið gagnrýninn á galla þess og neikvæðar hliðar. En komun okkur að efninu, og sökkvum okkur í að kanna Konur í ánauð. Við skulum byrja á sögunni um leikinn sem enginn fékk nokkurntíman að spila.