"Maríó!"
"Ó! Hjálp!"
Velkomin í þáttaröðina okkar þar sem við skoðum
hlutverk og birtingarmyndir kvenna í tölvuleikjum
Í þáttunum könnum við þau minni, frásagnartól
og munstur sem oftast tengjast konum í tölvuleikjum
á kerfisbundinn hátt
með heildarmyndina í huga.
Í þáttaröðinni verða margir vinsælir leikir og
ástsælar sögupersónur rýndar á gagnrýninn hátt.
en munið, að það er bæði mögulegt,
og jafnvel nauðsynlegt,
að hafa ánægju af listformi, en vera um leið
gagnrýninn á galla þess og neikvæðar hliðar.
En komun okkur að efninu,
og sökkvum okkur í að kanna Dömu i drama.
Við skulum byrja á sögunni um
leikinn sem enginn fékk að spila.
Árið 1999, vann fyrirtækið 'Rare' að gerð frumsamins
leiks fyrir Nintendo 64, sem hét Dinosaur Planet
Í leiknum átti önnur af spilanlegu aðalpersónunum
að vera 16 ára hetja að nafni Krystal.
Hún þurfti að ferðast um tímann, berjast við
forsöguleg skrímsli með galdrastafnum sínum
og bjarga heiminum. Hún var sterk,
hún gat allt og hún var hetja.
"Og hver ert þú, dýrastelpa?"
"Ég heiti Krystal"
Ansi svalt, ekki satt?
Eða það hefði verið það.
Leikurinn var nefnilega aldrei gefinn út.
Þegar þróun verkefnisins var alveg að ljúka,
grínaðist frægi leikjahönnuðurinn, Shigeru Miyamoto
með að honum finndist að þetta ætti frekar að
verða þriðji leikurinn í Star Fox leikjaseríunni sinni.
Sem var einmitt það sem hann og Nintendo
gerðu á næstu tveimur árum.
Þeir endurskrifuðu og -hönnuðu leikinn og gáfu hann út
sem Star Fox Adventures fyrir Game Cube árið 2002
Í þessari endurbættu útgáfu, hafði Krystal sem átti
að verða aðalpersóna, umbreyst í Dömu í drama
og situr nær allan leikinn föst í kristalsfangelsi
og bíður eftir að vera bjargað
af nýju aðal hetjunni, Fox McCloud.
Hasarsenunum í leiknum, sem voru
upprunalega samdar fyrir Krystal
var breytt þannig að Fox kom í staðinn.
Krystal var klædd í efnisminni og kynferðislegri fatnað.
"Vá! Hún er falleg!!"
"Hvað er ég að gera?"
Og, já. Þarna er spiluð hallærisleg saxafóntónlist
til að það sé alveg á tæru
að hún er núna girnileg, jafnvel
meðan hún er meðvitundarlaus.
Til að kóróna allt saman, notar Fox núna galdrastafinn
hennar í baráttu sinni til að bjarga henni.
Sagan um það hvernig Krystal breyttist úr
aðal hetjunni í sínu eigin magnaða ævintýri
í framtakslaust fórnarlamb í leik einhvers annars
sýnir hvernig Dömu í drama minnið
gerir kvenpersónur valdalausar
og sviptir þær tækifærinu á að vera
hetjur upp á sitt einsdæmi
Á ensku kallast Dama í drama 'Damsel in distress',
sem er á frönsku 'demoiselle en détresse'.
'Demoiselle' þýðir bara 'ung kona'
en 'détresse' má þýða sem, hræðsla eða örvænting
þess sem er yfirgefinn, hjálparlaus eða í hættu.
Sem minni, er Dama í drama frásagnartól
þar sem kvenpersóna er sett í háskalegar aðstæður
sem hún sleppur ekki úr að sjálfsdáðum
og þarf að vera bjargað af karlpersónu,
og er oftast helsta hvatning eða markmið
aðalpersónunnar í sögunni.
Í tölvuleikjum er þetta oftast gert með mannráni
en daman getur líka verið fryst
eða andsetin, til dæmis.
Oft er Daman fjölskyldumeðlimur
hetjunnar eða hann ástfanginn af henni -
prinsessur, eiginkonur, kærustur
og systur eru gjarnan notaðar.
Vissulega er Dama í drama nokkrum
þúsundum ára eldri en tölvuleikir.
Minnið er hægt að rekja til forngrísku
goðsagnarinnar um Perseus.
Í goðsögninni er sæskrímsli í þann
mund að gleypa Andrómedu