WEBVTT 00:00:00.242 --> 00:00:02.171 "Maríó!" 00:00:03.049 --> 00:00:04.810 "Ó! Hjálp!" 00:00:25.151 --> 00:00:30.082 Velkomin í þáttaröðina okkar þar sem við skoðum hlutverk og birtingarmyndir kvenna í tölvuleikjum 00:00:30.082 --> 00:00:36.447 Í þáttunum könnum við þau minni, frásagnartól og munstur sem oftast tengjast konum í tölvuleikjum 00:00:36.447 --> 00:00:39.410 á kerfisbundinn hátt með heildarmyndina í huga. 00:00:39.410 --> 00:00:43.079 Í þáttaröðinni verða margir vinsælir leikir og ástsælar sögupersónur rýndar á gagnrýninn hátt. 00:00:43.079 --> 00:00:46.463 en munið, að það er bæði mögulegt, og jafnvel nauðsynlegt, 00:00:46.463 --> 00:00:52.672 að hafa ánægju af listformi, en vera um leið gagnrýninn á galla þess og neikvæðar hliðar. 00:00:52.672 --> 00:00:56.917 En komun okkur að efninu, og sökkvum okkur í að kanna Dömu i drama. 00:00:58.134 --> 00:01:01.259 Við skulum byrja á sögunni um leikinn sem enginn fékk að spila. 00:01:01.259 --> 00:01:08.665 Árið 1999, vann fyrirtækið 'Rare' að gerð frumsamins leiks fyrir Nintendo 64, sem hét Dinosaur Planet 00:01:08.665 --> 00:01:14.193 Í leiknum átti önnur af spilanlegu aðalpersónunum að vera 16 ára hetja að nafni Krystal. 00:01:14.193 --> 00:01:19.326 Hún þurfti að ferðast um tímann, berjast við forsöguleg skrímsli með galdrastafnum sínum 00:01:19.326 --> 00:01:24.408 og bjarga heiminum. Hún var sterk, hún gat allt og hún var hetja. 00:01:24.408 --> 00:01:27.109 "Og hver ert þú, dýrastelpa?" 00:01:27.109 --> 00:01:28.860 "Ég heiti Krystal" 00:01:40.214 --> 00:01:41.820 Ansi svalt, ekki satt? 00:01:41.820 --> 00:01:44.904 Eða það hefði verið það. Leikurinn var nefnilega aldrei gefinn út. 00:01:44.920 --> 00:01:49.720 Þegar þróun verkefnisins var alveg að ljúka, grínaðist frægi leikjahönnuðurinn, Shigeru Miyamoto 00:01:49.720 --> 00:01:54.766 með að honum finndist að þetta ætti frekar að verða þriðji leikurinn í Star Fox leikjaseríunni sinni. 00:01:54.766 --> 00:01:57.451 Sem var einmitt það sem hann og Nintendo gerðu á næstu tveimur árum. 00:01:57.451 --> 00:02:03.462 Þeir endurskrifuðu og -hönnuðu leikinn og gáfu hann út sem Star Fox Adventures fyrir Game Cube árið 2002 00:02:03.462 --> 00:02:08.961 Í þessari endurbættu útgáfu, hafði Krystal sem átti að verða aðalpersóna, umbreyst í Dömu í drama 00:02:08.961 --> 00:02:12.502 og situr nær allan leikinn föst í kristalsfangelsi 00:02:12.502 --> 00:02:15.699 og bíður eftir að vera bjargað af nýju aðal hetjunni, Fox McCloud. 00:02:15.699 --> 00:02:19.259 Hasarsenunum í leiknum, sem voru upprunalega samdar fyrir Krystal 00:02:19.259 --> 00:02:21.802 var breytt þannig að Fox kom í staðinn. 00:02:21.802 --> 00:02:25.317 Krystal var klædd í efnisminni og kynferðislegri fatnað. 00:02:26.470 --> 00:02:29.102 "Vá! Hún er falleg!!" 00:02:35.796 --> 00:02:38.072 "Hvað er ég að gera?" 00:02:38.072 --> 00:02:43.516 Og, já. Þarna er spiluð hallærisleg saxafóntónlist til að það sé alveg á tæru 00:02:43.516 --> 00:02:47.824 að hún er núna girnileg, jafnvel meðan hún er meðvitundarlaus. 00:02:47.824 --> 00:02:56.003 Til að kóróna allt saman, notar Fox núna galdrastafinn hennar í baráttu sinni til að bjarga henni. 00:02:56.003 --> 00:02:59.173 Sagan um það hvernig Krystal breyttist úr aðal hetjunni í sínu eigin magnaða ævintýri 00:02:59.173 --> 00:03:01.516 í framtakslaust fórnarlamb í leik einhvers annars 00:03:01.516 --> 00:03:05.735 sýnir hvernig Dömu í drama minnið gerir kvenpersónur valdalausar 00:03:05.735 --> 00:03:09.237 og sviptir þær tækifærinu á að vera hetjur upp á sitt einsdæmi 00:03:10.222 --> 00:03:14.947 Á ensku kallast Dama í drama 'Damsel in distress', sem er á frönsku 'demoiselle en détresse'. 00:03:14.947 --> 00:03:17.358 'Demoiselle' þýðir bara 'ung kona' 00:03:17.358 --> 00:03:23.778 en 'détresse' má þýða sem, hræðsla eða örvænting þess sem er yfirgefinn, hjálparlaus eða í hættu. 00:03:23.778 --> 00:03:27.142 Sem minni, er Dama í drama frásagnartól 00:03:27.142 --> 00:03:30.149 þar sem kvenpersóna er sett í háskalegar aðstæður 00:03:30.149 --> 00:03:34.628 sem hún sleppur ekki úr að sjálfsdáðum og þarf að vera bjargað af karlpersónu, 00:03:34.628 --> 00:03:38.910 og er oftast helsta hvatning eða markmið aðalpersónunnar í sögunni. 00:03:38.910 --> 00:03:42.231 Í tölvuleikjum er þetta oftast gert með mannráni 00:03:42.231 --> 00:03:46.483 en daman getur líka verið fryst eða andsetin, til dæmis. 00:03:46.483 --> 00:03:51.490 Oft er Daman fjölskyldumeðlimur hetjunnar eða hann ástfanginn af henni - 00:03:51.490 --> 00:03:56.673 prinsessur, eiginkonur, kærustur og systur eru gjarnan notaðar. 00:03:57.458 --> 00:04:01.985 Vissulega er Dama í drama nokkrum þúsundum ára eldri en tölvuleikir. 00:04:01.985 --> 00:04:06.578 Minnið er hægt að rekja til forngrísku goðsagnarinnar um Perseus. 00:04:06.578 --> 00:04:10.536 Í goðsögninni er sæskrímsli í þann mund að gleypa Andrómedu